Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að tekjutap af yfirvofandi verkfalli flugvirkja geti hlaupið á milljörðum fyrir greinina. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni.Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags.„Við höfum mjög þungar áhyggjur af þessu og þetta er farið að hafa mikil áhrif nú þegar. Fyrirtækin okkar eru að fá símtöl frá viðskiptavinum sem hafa miklar áhyggjur og eru annaðhvort að hætta við eða færa til út af yfirvofandi verkfalli,“ segir Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.Fundur í deilunni í gær var árangurslaus. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar.Pétur segir að orðspor Íslands eigi eftir að skaðast komi til verkfalls og tekjutap verði mikið.„Íslensk ferðaþjónusta er sirka að velta milljarði á dag í september, þa