Áframhaldandi stuðningur Íslands í varnarmálum, efnahags- og mannúðaraðstoð og þvingunaraðgerðir gegn Rússum voru til umræðu á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu í dag.Þau ræddu einnig stöðuna í Úkraínu í aðdraganda vetrar, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins, og brýna þörf Úkraínu fyrir auknar loftvarnir og stuðning í orkumálum.Í tilkynningu Stjórnarráðsins segir að bregðast þurfi við alvarlegri stöðu á Svartahafi. Brýnt sé að Úkraína komi kornuppskeru sinni á alþjóðamarkað til að tryggja efnahagslega afkomu landsins og fæðuöryggi á heimsvísu því Rússar komi í veg fyrir útflutning með árásum á hafnir og flutningaskip.„Hugur minn er sem fyrr hjá úkraínsku þjóðinni sem horfir fram á erfiðan vetur vegna gegndarlausra lof