Ungmenni vilja að ríki og sveitarfélög ráðist í úrbætur á almenningssamgöngum

Almennilegar almenningssamgöngur vantar milli sveitarfélaga á Vestfjörðum, sérstaklega vegna íþrótta- og tómstundastarfs. Ungmenni vilja að stjórnvöld taki mark á skoðunum þeirra og grípi til aðgerða. HAFA ÁHYGGJUR AF AÐ UNGMENNI FLOSNI UPP ÚR ÍÞRÓTTUM OG TÓMSTUNDUM Ungmennaþing Vestfjarða var haldið á Suðureyri dagana 16. til 18. september. 40 fulltrúar úr sex af átta sveitarfélögum á Vestfjörðum sóttu þingið. Samgöngur voru ungmennunum ofarlega í huga og þau töluðu einum rómi um að setja almenningssamgöngur í forgang. Þau kröfðust aðgerða sveitarfélaga og ríkis.„Ungmennum finnst vanta meiri almenningssamgöngur á milli sveitarfélaga, sérstaklega í kringum íþróttastarf, þar sem í sumum sveitarfélögum er ekki hægt að æfa neinar íþróttir og þau hafa engan aðgang að íþróttastarfi. Í fyrsta
Ungmenni vilja að ríki og sveitarfélög ráðist í úrbætur á almenningssamgöngum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd