Fyrirtækið Stóruvellir ehf. í Bárðardal hættir nú framleiðslu á tólg, hamsatólg, hangifloti og útikertum eftir rúma þrjá áratugi. Nema það taki einhver við keflinu verður því ekki hægt að nálgast hamsatólg í matvöruverslunum þegar lager fyrirtækisins klárast enda eru þau ein um að framleiða hana.