Bandarísku miðlarnir CNN, MS Now og Politico fordæmdu í dag bann Bandaríkjaforseta við komu blaðamanna þeirra í Hvíta húsið í Washington.Donald Trump Bandaríkjaforseti sakaði miðlana í gær um að deila falsfréttum og sagði að fleiri fjölmiðlum yrði meinaður aðgangur að Hvíta húsinu í kjölfarið. Hann hefur áður meinað fréttaveitunni Associated Press aðgangi eftir að fréttaveitan neitaði að kalla Mexíkóflóa „Ameríkuflóa“.Associated Press höfðaði mál gegn banninu sem er enn í vinnslu og gert er ráð fyrir að CNN, MS Now og Politico leiti einnig til dómstóla.Trump sakaði miðlana um að deila falsfréttum.AP / Jacquelyn Martin