Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna á Íslandi. Skýrsla um fátækt barna og stöðu barnafjölskydlna var birt í vikunni og sýndi að dregið hefði úr fátækt barna frá aldamótum, úr 16,5% í 12,6%.Mikill munur er á stöðu barna eftir fjölskyldugerð, uppruna og menntun foreldra. Meðal annars búa um 30% barna einstæðra foreldra við fátækt, samanborið við um 8% barna sem búa með tveimur foreldrum.Meðal barna sem fædd eru erlendis og eiga tvo foreldra sem báðir eru af erlendum uppruna hækkaði fátæktarhlutfallið úr 23% árið 2000 í nær 34% árið 2024.Markmiðið með þingsályktunartillögunni er að draga úr fátækt barna og stuðla að því að öll börn hafi jöfn tækifæri til þátttöku og farsældar, óháð efnahag og f