Árás sundþjálfara harmleikur segir forseti ÍSÍ

Forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) segir atvik fyrir utan fund Sundsambands Íslands á fimmtudagskvöld hafa verið harmleik. Hann segir ÍSÍ í samskiptum við sambandið og félögin sem um ræðir og reynt sé að hlúa að öllum sem áttu hlut að máli.Greint var frá því í gær að til átaka hefði komið milli sundþjálfara KR og Gróttu fyrir utan fund Sundsambandsins á fimmtudagskvöld. Þjálfari KR mun hafa ráðist á þjálfara Gróttu og dregið upp hníf.Lögregla var kölluð til, en þjálfari KR mun hafa flúið vettvang á bíl. Lögregla veitti honum eftirför og ók á bifreiðina til að stöðva hana því hann fylgdi ekki fyrirmælum. Maðurinn slóst við lögreglu en var loks handtekinn, að því er fram kom í dagbók lögreglu í gærmorgun.Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, segir í samtali við fréttastofu að málið
Árás sundþjálfara harmleikur segir forseti ÍSÍ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd