Líklegt er að stjórnvöld grípi inn í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair, að mati formanns Flugvirkjafélags Íslands. Hann telur stjórnendur flugfélagsins vera með loforð uppi í erminni um að deilan verði leyst.Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, var gestur í Vikulokunum á Rás 1 og 2 í morgun. Að öllu óbreyttu og náist samningar ekki ætla flugvirkjar í ótímabundið verkfall aðfararnótt 23. september, eftir fjóra daga.Óskar segir Icelandair ekki hafa komið með neitt nýtt að borðinu á fundi þeirra hjá ríkissáttasemjara í gær. „Það var alveg núll áhugi fyrir að ná samkomulagi.“Ríkissáttasemjari hafi velt upp leiðum til að leysa deiluna en þær hafi ekki hugnast flugvirkjum. Flugvirkjar áttu frumkvæði að fundinum í gær en annar fundur hefur ekki verið boðaður.Óskar segir að Icelan