Væri einsdæmi ef Eyjamenn þyrftu að greiða fyrir almannavarnir

Miðað við fyrstu prófanir heldur nýja vatnslögnin sem var lögð til Vestmannaeyja þrýstingi – þrátt fyrir skemmdir.„Þannig að við erum vongóð um að hún sé nothæf til að flytja vatn en við vitum ekki alveg ástandið á henni,“ segir Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs í Vestmannaeyjum.Óttast var að altjón hefði orðið á nýju lögninni í ágúst þegar hún skemmdist þegar verið var að leggja hana. Ákveðið var samt að klára útlagninguna og miðað við fyrstu prófanir hefur þrýstingur haldist á lögninni.„Það varð tjón við lagningu lagnarinnar, eða mistök, hún beyglaðist eitthvað. Hvað það hefur mikil áhrif á framtíð þessarar lagnar verður bara að koma í ljós, vonandi með skýrslu frá útlagningaraðilum og kapalframleiðanda,“ segir Eyþór.Lögnin sem veitir Vestmannaeyingum vatn nú skemmdist fyrir þremur áru
Væri einsdæmi ef Eyjamenn þyrftu að greiða fyrir almannavarnir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd