Utanríkisráðherra Íslands fagnar því að Danir, Grænlendingar og Bandaríkin hafi komist að samkomulagi í Grænlandsdeilunni. Þrátt fyrir „skrítin kort“ hafi hún verið meðvituð um að viðræðum á milli ríkjanna miðaði fram. Hún telur að samstaða Íslands og annarra líktþenkjandi ríkja með Grænlendingum og Dönum hafi skipt sköpum í málinu.