Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsir þungum áhyggjum af skaðlegum áhrifum fyrirhugaðs verkfalls flugvirkja. Viðræður Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair í vikunni skiluðu ekki árangri og flugvirkjar hafa boðað ótímabundið verkfall í næstu viku náist samningar ekki. Að óbreyttu hefst það 23. september.SAF segir mikilvægt að verkfallið verði ekki að veruleika og að samningsaðilar leggi allt kapp á að ná saman.„Takist ekki samkomulag krefjast almannahagsmunir þess að stjórnvöld grípi inn í til að afstýra stórtjóni fyrir ferðaþjónustuna, atvinnulífið og íslenskt samfélag í heild,“ segir í yfirlýsingu SAF. FERÐAMENN BYRJAÐIR AÐ AFBÓKA Þegar sé farið að bera á afbókunum hjá ferðaþjónustufyrirtækjum um land allt. Þau hafi einnig fengið fyrirspurnir um niðurfellingu, endurgreiðslu og