Nýársnótt í Reykjavík árið 1960. Það er blankalogn og frost í lofti. Hvít mjöll þekur ísi lagða Tjörnina og lýsir janúarmyrkrið. Það eru fáir á ferli og mestu læti næturinnar yfirstaðin. Allt þar til hár hvellur raskar ró íbúa.Með þessari lýsingu opnar Halla Harðardóttir nýja hlaðvarpsþáttaröð, Hver sprengdi hafmeyjuna? um örlög Hafmeyju Nínu Sæmundsson, myndastyttu úr bronsi sem sprengd var í loft upp í skjóli nætur aðeins fáeinum mánuðum eftir að henni var komið þar fyrir.Hér má hlusta á fyrsta þáttinn: Úr torfbæ til Hollywood.Svona var talað um Hafmeyju Nínu Sæmundsson sem sprengd var í loft upp á nýársnótt 1960. Aldrei var upplýst um glæpinn en í nýrri hlaðvarpsseríu er málið skoðað í nýju ljósi og gamlar og nýjar tilgátur reifaðar.Á bakhlið Morgunblaðsins tveimur dögum eftir verknaðin