Nærri 38 ár eru liðin síðan flugvél Pan Am var sprengd yfir skoska bænum Lockerbie en réttarhöld í málinu eru í undirbúningi. Þeim var þó frestað skyndilega í ágúst þegar ný sönnunargögn komu fram.Michelle Ciulla Lipkin, sem missti föður sinn í hryðjuverkunum, telur réttarhöldin geta markað einhvers konar endalok. Er von um að þessi réttarhöld leiði sannleikann loks í ljós? Eða er hann kannski löngu kominn í ljós? MANNSKÆÐUSTU HRYÐJUVERK Í SÖGU BRETLANDS Klukkan 18:25 þann 21. desember árið 1988 tók Boeing 747 breiðþota á loft frá Heathrow flugvelli í London. Hún var á leiðinni til New York og þaðan á lokaáfangastað: Detroit í Michigan.Klukkan 19:03, um hálftíma eftir flugtak frá London, sprakk vélin, skrokkurinn rifnaði í sundur og logandi flakið hrapaði til jarðar úr 31 þúsund feta hæ