18 ára liðsmaður 764 dæmdur í Svíþjóð

Átján ára maður sem var áhrifamikill liðsmaður alþjóðlega netofbeldishópsins 764 hefur verið dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi í Svíþjóð fyrir margvísleg brot – þar á meðal tilraun til manndráps, nauðgun og brot tengd barnaníðsefni. 764-hópurinn hefur verið umsvifamikill um allan heim undanfarin misseri.764-hópurinn herjar á börn og kúgar þau til ofbeldisverka í gegnum netið. Maðurinn, sem gekk undir nafninu „Chai“ í vefsamskiptum, var milli fimmtán og sautján ára gamall þegar hann framdi brotin, að því er Aftonbladet greinir frá.Hann var einnig dæmdur til að greiða þolendum jafnvirði rúmlega 20 milljóna íslenskra króna.Brotin teygja anga sína langar leiðir. Chai er meðal annars sakaður um að hafa hvatt til og veitt liðsinni við tilraun til manndráps á rúmlega áttræðum manni í Þýskalandi
18 ára liðsmaður 764 dæmdur í Svíþjóð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd