Vikulokin – Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja

Vikulokin verða á sínum stað í dag klukkan 11:00 í útvarpi og í beinu streymi hér á vefnum. Í fyrri hluta verður rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga. Þau ræða einnig fyrirhugaða brottvísunarstöð, breytingar á kosningalögum og verkfall flugvirkja.Bankaskattur sem boðaður var í nýju fjárlagafrumvarpi verður í brennidepli í öðrum hluta þar sem rætt verður við Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins, Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka, og Gylfa Magnússon hagfræðiprófessor.Að lokum verður rætt við Óskar Einarsson, formann Flugvirkjafélags Íslands, um kjaradeilu við Icelandair og fyrirhugað verkfall.
Vikulokin – Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd