Allir dómarar vanhæfir vegna ljósmóður á eftirlaunum

Allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur verða að víkja sæti í skaðabótamáli sem kona hefur höfðað gegn ríkinu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms þessa efnis fyrir helgi.Konan krefst bóta vegna breytinga sem gerðar voru á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins 2016. Þessi lagabreyting gerði stjórn sjóðsins kleift að skerða lífeyrisréttindi félaga í A-deild 2023 vegna hækkandi lífaldurs og ákvörðunar um að miða réttindasöfnun félaga við væntan lífaldur.Kona sem var ljósmóðir um áratugaskeið og er komin á eftirlaun segir að með þessu hafi greiðslur sjóðsins til hennar lækkað um 9,9 prósent að meðaltali. Þetta vill hún að ríkið bæti sér. ALLIR Í SAMA SJÓÐI Skaðabótamál konunnar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Allir dómararnir eiga það sameiginlegt með konunni sem ste
Allir dómarar vanhæfir vegna ljósmóður á eftirlaunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd