Starfshópur dómsmálaráðherra leggur til verulegar breytingar á íslenska kosningakerfinu til að jafna vægi atkvæða eftir búsetu. Tillögurnar fela í sér að jöfnunarsætum fjölgi mikið án þess að þingmönnum fjölgi og sæti færist milli kjördæma í samræmi við fjölda kjósenda. Suðvesturkjördæmi, Kraginn, fengi samkvæmt tillögunum 18 þingmenn.