Átján ára piltur hefur verið dæmdur til tíu ára fangelsis í dómstóli í Umea í Svíþjóð fyrir tvær tilraunir til manndráps gegn ungmenni í Þýskalandi og fjölmörg kynferðis- og ofbeldisbrot gegn ástralskri stúlku. Brotin áttu sér stað á netinu og pilturinn hefur verið kallaður „Chai“ í sænskum miðlum og var hluti af glæpahópnum 764.