Segist ekki vita betur en að sonurinn hafi endurgreitt rússneskum auðmanni veislukostnað

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki vita annað en að sonur hans og nafni hafi endurgreitt rússneskum kaupsýslumanni kostnað við tveggja daga brúðkaupsveislu sem haldin var á Bahamaeyjum í maí.Veislan er sögð hafa kostað um hundrað þúsund dali og hefur vakið siðferðisspurningar og vangaveltur um óeðlileg tengsl fjölskyldu forsetans við Rússa. Trump sagði ekkert ólöglegt við slíka vinargjöf.Umar Kremlev er auk þess að vera vellauðugur kaupsýslumaður forseti Alþjóðahnefaleikasambandsins og náinn bandamaður Vladimírs Pútíns forseta. Donald Trump yngri og Bettina Anderson eiginkona hans hafa sagt Kremlev náinn vin sinn.Óháða fréttastofan ProPublica greindi frá því fyrr í september að ólígarki með náin tengsl við Rússlandsforseta hefði á laun lagt út fyrir brúðkaupsveislunni, þar á meðal
Segist ekki vita betur en að sonurinn hafi endurgreitt rússneskum auðmanni veislukostnað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd