Boðað hefur verið til stutts og óformlegs fundar í næstu viku milli Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Delcy Rodriguez, sitjandi forseta Venesúela, meðan á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna stendur.Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, greindi frá fundinum á blaðamannafundi í gær.Þetta yrði í fyrsta sinn sem forsetarnir hittast en Rodriguez hefur setið í embætti frá því bandarískir hermenn námu Nicolas Maduro á brott í janúar og fluttu til Bandaríkjanna. Þar situr hann í gæsluvarðhaldi ásamt eiginkonunni Ciliu Flores og bíður réttarhalda meðal annars fyrir aðild að umfangsmiklum fíkniefnaviðskiptum. MARGVÍSLEGAR HREYTINGAR Í FARVATNINU Stjórnvöld beggja ríkja gerðu umfangsmikinn olíusamning í ágúst þar sem Bandaríkjunum er veitt meirihlutastjórn yfir milljörðum t