„Það liggur ljóst fyrir og blasir við að þetta gerðist út af vanhæfi stjórnenda bæjarins, og bæjarstjórarnir tveir, bera höfuðábyrgðina á þessu,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fráfarandi varaformaður Samfylkingarinnar. Samfylkingin undir forystu Guðmundar Árna varaði ítrekað við seinagangi vegna lóðakaupa í tengslum við Tækniskólann. Meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks mistókst að semja um uppkaup á...