Umræðan um Wolt-sendla, verktakavinnu og svokallað gigg-hagkerfi á Íslandi einkennist oft af einföldunum og fullyrðingum sem eiga sér litla stoð í raunveruleikanum. Á samfélagsmiðlum og í athugasemdakerfum heyrist því oft haldið fram að sendlar greiði enga skatta, starfi án tilstilli laga eða leigi kennitölur af öðrum. Þegar staldrað er við og rýnt í umhverfið kemur í ljós mun flóknari mynd.