Handtóku mann sem reyndist hvort tveggja vopnaður og eftirlýstur

Lögreglumenn höfðu afskipti af manni í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt sem við nánari eftirgrennslan reyndist vopnaður og eftirlýstur í þokkabót.Lögreglubílar í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni.Kristján Þór IngvarssonHann var því vistaður í fangaklefa að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tveir voru handteknir í miðborginni grunaðir um innbrot í bíl og rúðubrot. Engan sakaði í umferðarslysi í Neðra-Breiðholti.Auk þessa sinntu lögreglumenn umferðinni og ökumönnum í margs konar ástandi og fyrir ýmis umferðarlagabrot, meðal annars fyrir að aka yfir gatnamót á rauðu ljósi, akstur án réttinda og hraðakstur. Einn keyrði á 128 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er 90.
Handtóku mann sem reyndist hvort tveggja vopnaður og eftirlýstur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd