Að minnsta kosti 31 var drepinn í skot- og sjálfsmorðssprengjuárás á lögreglustöð í norðurhluta Pakistan í gærkvöld og hundrað til viðbótar særðust. Sextán hinna látnu eru lögreglumenn og langflestir hinna særðu, sem margir eru í lífshættu.AFP hefur þetta eftir háttsettum embættismanni innan lögreglunnar sem segir að enn sé barist við árásarmennina.Þeir ruddust inn í stöðina sem er í bænum Kohat og hýsir meðal annars hryðjuverkadeild og sérsveit héraðslögreglunnar. Vígasveitin Ittehad-ul-Mujahideen Pakistan, sem er tengd sveitum talibana í landinu, hefur lýst ábyrgð á atlögunni. KENNA TALIBÖNUM UM FJÖLGUN ÁRÁSA Á LANDAMÆRAHÉRUÐ Stjórnvöld í Pakistan hafa kennt vígamönnum frá nágrannaríkinu Afganistan um mikla fjölgun árása á landamærahéruð sunnanvert í landinu. Talibanar í Afganistan ha