Bandaríkin herða enn á þvingunaraðgerðum gegn Rússum

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest lög um frekari þvingunaraðgerðir í garð Rússa vegna innrásarstríðsins í Úkraínu. Nokkrir dagar eru síðan fulltrúadeildin samþykkti frumvarp til laga þess efnis.Spjótum er einkum beint að rússneskum orkufyrirtækjum og varnargeiranum, skuggaflotanum sem notaður hefur verið til að sneiða hjá þvingunaraðgerðum, auk forsetans Vladimírs Pútín og fleiri háttsettra embættismanna.Trump fær heimild til að leggja allt að hundrað prósenta tolla á vörur frá þeim ríkjum sem mest kaupa af rússnesku jarðgasi og olíu.Sú ráðstöfun gæti einkum beinst gegn Kína og Indlandi og er ætlað að draga úr ágóðanum sem knýr stríðsvél Rússlands áfram. Heimildin olli óvenjulegum klofningi meðal þingmanna Demókrata sem almennt vilja hag Úkraínu sem mestan.Fyrirtæki og erlendir
Bandaríkin herða enn á þvingunaraðgerðum gegn Rússum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd