Danmörk og Bandaríkin hafa gert öryggissamning um Grænland. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu á samfélagsmiðli sínum og Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur staðfesti tíðindin skömmu síðar. Sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar fyrir Grænland segir samkomulagið sem tilkynnt var í kvöld styrkja varnir Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands og koma í veg fyrir að andstæðingar nái fótfestu á norðurslóðum. Jeff Landry, deildi samfélagsmiðlafærslu Donalds Trump forseta og hældi honum í hástert fyrir að tryggja samninginn. Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin fá varanleg yfirráð yfir öryggismálum á Grænlandi. Trump hefur ekki farið í grafgötur með vilja sinn til að komast yfir Grænland vegna öryggis og auðlinda. Varnarmálaráðherrann Pete Hegseth deildi færslunni einnig með þe