Danmörk og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu á samfélagsmiðli sínum og Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur staðfesti rétt í þessu.„Það gleður mig að tilkynna að Bandaríki Norður-Ameríku hafa gert samning við konungsríkið Danmörku og Grænland, sem veitir Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum og öllum öðrum þörfum á Grænlandi og kemur að fullu til móts við ALLAR okkar mörgu bandarísku áhyggjur,“ skrifar Trump á Truth Social.„Við munum þegar í stað hefja ferlið við að þróa mikla hernaðarlega viðveru á viðkomandi svæði á Grænlandi, þar sem mörg hentug svæði eru. Við munum vinna með íbúum Grænlands að þróun og uppbyggingu.“Að sögn Trumps er þessi lausn góð fyrir Danmörku, Grænland, Bandaríkin og bandamenn allra landanna