Rússneskar hersveitir beita almenna borgara og stríðsfanga í Úkraínu miklu kynferðislegu. Úkraínuher virðist bera ábyrgð á mun færri slíkum brotum. Þetta segir í nýrri skýrslu Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Gerð er grein fyrir 1.004 staðfestum tilvikum kynferðisofbeldis tengdum stríðsátökunum frá því í febrúar 2022 til júlí á þessu ári. Áréttað er að niðurstöðurnar eru ekki tæmandi í ljósi þess að enn berast mjög fáar tilkynningar um kynferðisofbeldi tengt stríðinu. Í skýrslunni greina þolendur frá hópnauðgunum, limlestingu og beitingu raflosts á kynfæri. Karlar í varðhaldi, einkum hermenn, urðu fyrir ofbeldi og einnig konur og börn, einkum á herteknum svæðum. ENGIN MERKI UM NAUÐGANIR RÚSSNESKRA STRÍÐSFANGA Tæplega helmingur brota á úkraínskum svæðum fólust í hótunum um kynf