Trump segir Bandaríkin og Danmörku hafa gert samning um Grænland

Danmörk og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland að sögn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Danska ríkisútvarpið DR greinir frá.„Það gleður mig að tilkynna að Bandaríki Norður-Ameríku hafa gert samning við konungsríkið Danmörku og Grænland, sem veitir Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum og öllum öðrum þörfum á Grænlandi og kemur að fullu til móts við ALLAR okkar mörgu bandarísku áhyggjur,“ skrifar hann á Truth Social.„Við munum þegar í stað hefja ferlið við að þróa mikla hernaðarlega viðveru á viðkomandi svæði á Grænlandi, þar sem mörg hentug svæði eru. Við munum vinna með íbúum Grænlands að þróun og uppbyggingu.“Að sögn Trumps er þessi lausn góð fyrir Danmörku, Grænland, Bandaríkin og bandamenn allra landanna.Samkomulagið banni andstæðingum Bandaríkjanna að byggja herstöðvar
Trump segir Bandaríkin og Danmörku hafa gert samning um Grænland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd