Geta stóraukið fræframleiðslu með nýju húsi í Vaglaskógi

Framleiðsla á fræjum úr trjátegundinni hrymi gæti stóraukist, eftir byggingu nýs gróðurhúss í Vaglaskógi. Starfsfólk vonast til að fræhöllin skili þeim milljónum fræja á ári.Í nýja gróðurhúsið, sem stendur við hlið gamla fræhússins, fóru um hundrað milljónir króna. Ætlunin er að nota það til ræktunar á hrymsfræjum, sem eru aðeins framleidd á Vöglum og hefur eftirspurnin verið umfram framleiðslu.Hrymur er afrakstur áralangs kynbótastarfs - eiginlegt afkvæmi tveggja erlendra lerkitegunda og skilar harðgerðum og hraðvöxnum trjám.Og skógræktarfólk vonar að fræhöllin geti orðið heimili fleiri tegunda síðar meir.
Geta stóraukið fræframleiðslu með nýju húsi í Vaglaskógi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd