Akureyrarbær ætlar að sjá um framkvæmd viðbyggingar við Verkmenntaskólann í bænum en ríkið greiðir áfram sinn hluta, sextíu prósent. Samkomulag þess efnis var undirritað á Akureyri í dag.Árið 2023 lýsti þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, því yfir að byggja ætti 12 til 16 þúsund fermetra við verknámsskóla landsins á næstu árum. Hafist var handa við Fjölbrautaskólann í Breiðholti haustið 2024 en aðrir skólar hafa þurft að bíða.„Við erum að fara að opna núna í fjölbraut í Breiðholti alveg frábæra aðstöðu. Svo var ég að skrifa undir viljayfirlýsingu með nýjum bæjarstjóra í Reykjanesbæ, þar sem við ætlum að fara að stækka fjölbraut í Reykjanesbæ. Nú á Sauðárkróki er nákvæmlega sama í uppsiglingu eins og hér, þar sem sveitarfélagið er komið af stað með teikningum og