Landspítalinn þarf að hagræða um allt að tvo milljarða

Rúmlega 130 milljarðar fara til Landspítalans á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Framlög aukast um rúma átta og hálfan milljarð milli ára. Þrátt fyrir þetta telur Runólfur Pálsson forstjóri spítalans að mögulega þurfi að grípa til hagræðingar.„Eins og þetta horfir við í dag þá liggur fyrir að við þurfum að hagræða að einhverju marki. Möguleg sem nemur allt að tveimur milljörðum. Og það útaf fyrir sig er bara þungt fyrir okkur vegna þess að við erum að reyna að þróa Landspítala sem háskólasjúkrahús. Halda í við háskólasjúkrahús meðal nágrannaþjóða,“ segir Runólfur.Hann segir að möguleg hagræðing hafi ekki áhrif á þjónustu við sjúklinga.„Við reynum alltaf að tryggja þjónustu við sjúklinga. Eins og ég hef margítrekað sagt að sjúkrahúsið hefur svo mörg önnur hlutverk. Þó að þjónustan vi
Landspítalinn þarf að hagræða um allt að tvo milljarða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd