Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tekið ákvörðun um að fjölmiðlunum CCN, Politico og MSNOW verði tafalaust bannaður aðgangur að Hvíta húsinu. Hann sakar blaðamenn miðlanna um að hafa ítrekað birt falsfréttir er varða ríkisstjórn hans, hann sjálfan sem og Bandaríkin. Með þessu bætast blaðamenn miðlanna í sístækkandi hóp þeirra sem mega ekki stíga fæti inn á blaðamannafundi forsetans.