Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús vegna bílveltu sem varð á Barðastrandarvegi á Vestfjörðum á fimmta tímanum. Sjö voru um borð í bílnum sem var með sæti fyrir níu.Bíllinn virðist hafa runnið út af veginum og oltið tvisvar eða þrisvar sinnum. Farþeginn sem fluttur var til aðhlynningar með þyrlu virðist hafa kastast úr bílnum. Þetta segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, í samtali við fréttastofu. Hann segir allar líkur á því að farþeginn hafi ekki verið spenntur í bílbelti. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var farþeginn meðvitundarlaus en komst svo til meðvitundar.Tvær þyrlur voru kallaðar út í upphafi en annarri var síðar snúið við því ekki var talin þörf á þeim báðum. Þá voru björgunarsveitir í Vesturbyggð og á Barðaströnd, slökkvilið, sjúkr