Alvarlegt atvik sem kom upp í gær, þar sem sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn, er á afar viðkvæmu stigi. Það er einnig í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu en í tölvupósti sem var sendur á alla KR-inga segir að nú sé mikilvægt að sýna samhug og hlúa hvert að öðru.