Einn fluttur á sjúkrahús vegna slyss á Vestfjörðum

Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús vegna bílveltu sem varð á Vestfjörðum á fimmta tímanum. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Hann segir slysið hafa orðið á Barðastrandarvegi. Tvær þyrlur voru kallaðar út í upphafi en annarri var síðar snúið við því að ekki var talin þörf á þeim báðum.Fréttin hefur verið uppfærð.
Einn fluttur á sjúkrahús vegna slyss á Vestfjörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd