Fram kemur í skýrslu Fjarskiptastofu um útfösun 2G og 3G farnetskerfanna að hugmyndir um vandræði við neyðarhringingar hafi ekki komið inn á borð þeirra fyrr en í október, rúmum tveimur mánuðum áður en átti að slökkva á sendum landsins. Í skýrslunni er það kallað vendipunktur.„Nánari upplýsingar sýna að vandinn er flóknari en áður hafði legið fyrir. Sum 4G/5G-tæki geta virst virka eðlilega við almenna notkun og jafnvel stutt almenn VoLTE símtöl, án þess að neyðarsímtöl yfir VoLTE virki með fullnægjandi hætti. Þetta breytir áhættumynd verkefnisins verulega og kallar á aukið áhættumat og frekari mótvægisaðgerðir.“Í kjölfarið hafi mikil vinna farið af stað til þess að koma í veg fyrir fjölda notenda sem ekki gætu hringt í neyðarnúmerið þegar slökkt yrði á sendunum. Þá voru gefnar út sérstakar