Verjendur tveggja skipverja í Dettifossmálinu kröfðust þess við aðalmeðferð málsins í dag að skjólstæðingar þeirra yrðu sýknaðir eða þeim gerð vægasta refsing sem lög leyfa. Þeir lögðu áherslu á að skipverjarnir hefðu verið neðstir í keðjunni, fengið fyrirmæli um það sem þeir áttu að gera og aðstoðað lögreglu við rannsókn málsins með játningum og skýrum framburði.