Ríkisstjóri Kaliforníu hefur skrifað undir tilskipun um þróun neyðarrofa fyrir gervigreind. Í tilskipuninni felur Gavin Newsom ríkisstjóri embættismönnum að kanna möguleikann á að skylda tæknifyrirtæki til að þróa neyðarrofa fyrir fullkomnustu gervigreindarlíkön sín.Newsom kveðst grípa til þessara ráðstafana vegna þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti aðhefðist ekkert í málinu. Trump sagði í vikunni að áhyggjur af framþróun gervigreindar væru uppspunnar og hvatti gervigreindarfyrirtæki til að halda framþróuninni áfram.Tilskipunin um neyðarrofann er hluti af röð aðgerða sem Newsom ætlar að ráðast í til að koma böndum á gervigreind.„Alvarleg vanræksla alríkisstjórnarinnar á að skapa gervigreindinni umgjörð eða ábyrgð ætti að vekja áhyggjur hjá Bandaríkjamönnum öllum, sérstaklega hjá forstjó