Þyrlan kölluð út vegna slyss á Vestfjörðum

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum vegna umferðarslyss á Vestfjörðum. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Hann segir slysið hafa orðið á Barðastrandarvegi. Tvær þyrlur voru kallaðar út í upphafi en annarri var síðar snúið við því að ekki var talin þörf á þeim báðum.Þyrlan lenti fyrir skömmu.Fréttin verður uppfærð.
Þyrlan kölluð út vegna slyss á Vestfjörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd