Fundi flugvirkja og Icelandair slitið án árangurs

Viðræðum í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair miðar hægt. Samninganefndir hittust í dag en svo virðist sem fundurinn hafi ekki skilað miklu.„Það gekk ekki betur en svo að fundi var slitið án árangurs,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við RÚV að loknum viðræðum í dag. Aðspurður segir hann að enginn nýr fundur sé fyrirhugaður að svo stöddu.Flugvirkjar hafa átt í kjaradeilu við flugfélagið undanfarna mánuði. Kjarasamningar þeirra losnuðu um síðustu áramót og viðræður hófust í nóvember 2025. Þann 13. febrúar tóku Samtök atvinnulífsins, sem fara með samningsumboð fyrir Icelandair, ákvörðun um að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.„Fyrirtækið hefur fram að þessu ekki sýnt áhuga á að ræða við okkur um lausn deilunnar,“ segir Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Ísland
Fundi flugvirkja og Icelandair slitið án árangurs

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd