Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars Arnar Hilmarssonar, sagði í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að rannsókn lögreglu á Dettifossmálinu hefði verið ófullnægjandi og að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að sanna að Sævar hefði átt aðkomu að innflutningi amfetamínbasans sem fluttur var með Dettifossi hingað til lands í apríl.