Sjálftínsla á kartöflum í Borgarfirði á akri bónda

Jón Björn Blöndal bóndi er bæði með búskap á jörðinni Stafholtsey og Langholti í Bæjarsveit í Borgarfirði. Hann hvetur fólk til að birgja sig upp af kartöflum fyrir veturinn og því verður hann með sjálftínslu á morgun frá klukkan eitt til fjögur þar sem ungum, sem öldunum er boðið að koma og taka þátt.„Fólk kemur bara með sín ílát eða poka og tínir bara fyrir sig eins mikið og það vill og síðan kemur það með það til mín en ég verð á svæðinu með vog og vigta það sem fólk tínir. Og fólk greiðir fyrir það eitthvað smá gjald en ég miða við hálfvirði miðað við það sem það er úti í búð,“ segir Jón Björn.Jón Björn var nýlega með sjálftínslu á gulrótum sem tókst einstaklega vel enda kláruðust þær hjá honum á mettíma. Hann segir greinilegt að fólk hafi gaman af svona uppátækjum og ekki síst að koma
Sjálftínsla á kartöflum í Borgarfirði á akri bónda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd