Andreas Norlen, forseti sænska þingsins, fól Magdalenu Andersson, leiðtoga sænskra jafnaðarmanna, í dag að mynda nýja ríkisstjórn.Ulf Kristersson forsætisráðherra baðst lausnar í gær fyrir ríkisstjórn sína sem missti meirihlutann á þingi í kosningum á sunnudag. Vinstri- og miðblokkin hefur nauman meirihluta á þinginu eftir kosningar.Norlen sagði að niðurstaða viðræðna hans við formenn flokkanna á sænska þinginu væri sú að fela Andersson að reyna að mynda ríkisstjórn.Magdalena Andersson og Andreas NorlenEPA / Christine Olsson