Þriðji og síðasti dagurinn í aðalmeðferð í Dettifoss-málinu svokallaða fer fram í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepaj og tveir skipverjar eru grunaðir um að flytja inn 14 lítra af amfetamínvökva frá Bremerhaven í Þýskalandi með Dettifossi í apríl.Síðustu vitni voru kölluð til skýrslutöku fyrir dómi í dag. Þá voru skipverjarnir tveir sem eru ákærðir í málinu einnig kallaðir fyrir dóm aftur, en þeir gáfu skýrslu á miðvikudaginn.Skipverjarnir voru ekki viðstaddir í eigin persónu heldur sóttu þinghald í gegnum fjarfundarbúnað. Þar voru þeir spurðir út í myndir af flöskum sem þeir eru taldir hafa smyglað amfetamínbasa með frá Þýskalandi.Ákæruvaldinu var fyrst heimilt að leggja fram mynd af flöskunum í gær, þar sem verjendur mótmæltu því að hún hefði fyrst verið