Karlmaður játaði á sig innbrot í sum eldisbúanna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er búin að upplýsa innbrot í nokkur alifugla- og svínabú sem framin voru í sumar.Lögreglan segir að karlmaður á þrítugsaldri hafi verið handtekinn vegna innbrotanna. Hann hefur játað sök.Innbrotin og eignaspjöllin sem maðurinn játar á sig voru í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og í alifuglabú Reykjabúsins í Mosfellsbæ. Hann játaði einnig á sig innbrot í alifuglabú og svínabú á Suðurlandi og Kjalarnesi. Ekki er búið að upplýsa innbrotið í Dalsbú í Mosfellsdal. Það er enn til rannsóknar. Lögregla segir að þeirri rannsókn miði vel.Fréttin hefur verið uppfærð.
Karlmaður játaði á sig innbrot í sum eldisbúanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd