Fyrirtækið Wolt hagnaðist um rúmlega 107 milljónir króna í fyrra og nærri tvöfaldaði tekjur sínar á milli ára. Heildartekjur fyrirtækisins námu rúmlega 1240 milljónum króna en höfðu verið rúmlega 630 milljónir árið á undan. Stjórn félagsins er ánægð með tekjuvöxt og arðsemi félagsins í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Wolt sem skilað var til ársreikningaskrár Ríkisskattstjóra þann 15. september.Wolt er fyrirtæki sem sérhæfir sig í heimsendingum á mat og neysluvörum til fólks og fyrirtækja. Wolt á Íslandi er íslenskt dótturfélag innan alþjóðlegu Wolt samstæðunnar og er hluti af bandarískri fyrirtækjasamstæðu sem heitir DoorDash. Wolt var upphaflega stofnað í Finnlandi árið 2014 og er starfrækt út um allan heim í dag. Árið 2022 var Wolt-samstæðan keypt af áðurnefndu stórfyrirt