Deilt var um stærð flasknanna sem amfetamínbasinn var fluttur í við aðalmeðferð Dettifossmálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Lögreglumaður sem kom að rannsókn málsins hafnaði því að flöskurnar hefðu samanlagt rúmað um tíu lítra, líkt og miðað hefur verið við í málflutningi verjenda.