Óþarfa leyndarhyggja ríkir um niðurstöður einstakra skóla í PISA-könnuninni að mati Jóns Péturs Zimsens, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og 1. varaformanns allsherjar- og menntamálanefndar. Skólar og sveitarfélög hafa hingað til ekki fengið eigin niðurstöður birtar, þótt gögnin séu til og aðrar þjóðir nýti þau.