Pínulítil villt kattartegund hefur verið uppgötvuð í Yungas-skógi í fjalllendi Bólivíu.Þetta er í fyrsta skipti í meira en 100 ár sem ný og lifandi kattartegund hefur fundist.Kötturinn hefur verið kallaður tilcayo af íbúum á svæðinu. Hann er af ætt sem finnst víða í Suður-Ameríku.Kötturinn er smærri en heimiliskettir eru alla jafna, eða um 46 sentímetrar á lengd og á annað kíló. Hann er ljósbrúnn á lit og með rósettumynstur, líkt og hlébarðar.Vísindamenn hafa staðfest að þetta sé áður óþekkt tegund með genarannsóknum. Hún fékk nafnið Leopardus tilcayo.